Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Að fyrirbyggja meðvirkni á vinnustað

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum verður fjallað um hvað getur orsakað að meðvirkar aðstæður fái að þróast á vinnustaðnum, hvernig við verðum meðvirkninni að bráð án þess að gera okkur grein fyrir því og hvaða áhrif það getur haft á menninguna og andann á vinnustaðnum. Sömuleiðis verður farið yfir nokkrar ólíkar leiðir sem við getum sjálf haft að leiðarljósi í störfum okkar, nálgun og samskiptum til að fyrirbyggja að slíkar aðstæður komi upp.

Hver verður með okkur?
Sigríður Indriðadóttir, þjálfari hjá SAGA Competence.
Hún er mannauðsfræðingur með víðtæka reynslu og þekkingu úr atvinnulífinu. Hún starfaði sem forstöðumaður mannauðsmála hjá Mosfellsbæ, Mannviti og  Íslandspósti og þjálfaði fólk í mannlegum samskiptum hjá Dale Carnegie í fimm ár. Sigríður hefur meðal annars sérhæft sig í því að þjálfa fólk í að greina og taka á meðvirkum aðstæðum sem geta skapast á vinnustöðum.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi