Þú ert frábær!
Erindið á þessum Dokkufundi er byggt á akademíu og persónulegri reynslu. Hugrekki, valdefling, jákvæðni og heiðarleiki er rauður þráður erindisins. Markmiðið er að fólk fari út með verkfæri…
Skoða fund →
Virðing á vinnustað er bæði lykilþáttur í heilbrigðu starfsumhverfi en mótar líka ímynd fyrirtækisins út á við.
En hvaða áhrif hefur virðing eða skortur á henni á líðan starfsfólks, starfsánægju, veikindafjarvistir og árangur ?
Fyrirlesturinn er settur upp út frá reynslu fyrirlesara sem stjórnanda og starfsmanns á gólfinu en með stuðningi við rannsóknir á þessum þætti.
Hver verður með okkur?
Sólrún Erla Gunnarsdóttir. Hún útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands 2004 og með diplomu í öldrunarþjónustu frá HÍ 2024. Hún lagði áherslu á lausnamiðaða nálgun (solution focused therapy) í starfsnáminu eftir útskrift og aðhyllist þá hugmyndafræði í sínum störfum.
Sólrún á að baki langa starfsreynslu úr öldrunarmálum sem stjórnandi og ráðgjafi. Hún starfar í dag sem félagsráðgjafi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum og hjá Lífsgæðasetrinu Veru, www.veralif.is, ásamt því að sinna verkefnum tengdum Aldur er bara tala.