Virðing á vinnustað – skiptir hún raunverulega máli?
Virðing á vinnustað er bæði lykilþáttur í heilbrigðu starfsumhverfi en mótar líka ímynd fyrirtækisins út á við. En hvaða áhrif hefur virðing eða skortur á henni á líðan…
Skoða fund →
Erindið á þessum Dokkufundi er byggt á akademíu og persónulegri reynslu.
Hugrekki, valdefling, jákvæðni og heiðarleiki er rauður þráður erindisins.
Markmiðið er að fólk fari út með verkfæri í verkfærakassanum sem snúa að hinu sammannlega, áföllum og mótlæti, erfiðleikum og því að trúa á okkur sjálf.
Hver verður með okkur?
Kristján Hafþórsson, oft kallaður Krissi Haff. Hann er með BA gráðu í félagsfræði, MS gráðu í Nýsköpun og viðskiptaþróun og er að klára starfsréttindanám í kennslu framhaldsskóla næsta vor.
Kristján vinnur hjá Peppandi sem er start up fyrirtæki sem hann stofnaði og einnig hjá Pipar/TBWA auglýsingastofu í hlutastarfi.
Kristján er 35 ára, 3 barna faðir, giftur henni Rakel sinni og áttu þau 10 ára brúðkaupsafmæli síðastliðið sumar, vel gert!.