Traust í teymum.
Traust verður sýnilegt í daglegum samskiptum, sérstaklega þegar upp koma mistök, óvissa, ólík sjónarmið eða slæmar fréttir. Þar sem traust ríkir þorir fólk að biðja um hjálp, viðurkenna…
Skoða fund →
Það er ákveðinn órói í íslensku samfélagi.
Breytingar, hagræðing, uppsagnir og efnahagsleg óvissa setja mark sitt á vinnustaði – og tilfinningarnar fylgja með.
Á þessum Dokkufundi skoðum við Bófana þrjá: kvíða, sorg og reiði.
Hvað gerist innra með okkur þegar óvissan eykst? Hvernig birtast þessar tilfinningar í hegðun og samskiptum – og hvernig getum við brugðist betur við þeim, bæði hjá okkur sjálfum og öðrum?
Með tilfinningagreind að leiðarljósi fá þátttakendur aukinn skilning á því sem gerist þegar á reynir og hagnýtar leiðir til að standa betur í óvissunni, stjórna eigin viðbrögðum og mæta öðrum af meiri festu og skilningi.
Við skiljum tilfinningarnar ekki eftir heima þegar við mætum í vinnuna. Spurningin er hvað við gerum við þær.
Hver verður með okkur?
Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi. Hún hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.