• Dokkufundir
  • Dokkunámskeið
  • Um okkur
  • Hafa samband
NýskráningSkrá vinnustaðInnskráning
NýskráningSkrá vinnustaðInnskráning
Skilmálar

Skilmálar námskeiða Dokkunnar

1. Gildissvið

Skilmálar þessir gilda um öll námskeið, vinnustofur og þjálfun sem haldin eru á vegum Dokkunnar, hvort sem um er að ræða staðnám, netnám eða blandað fyrirkomulag.

— Hér er ekki verið að vísa í Dokkufundina en aðgangur að þeim fæst í gegnum áskrift.

Með skráningu samþykkir þátttakandi og/eða fyrirtæki þessa skilmála.

2. Skráning og greiðslur

Skráning telst bindandi þegar staðfesting hefur borist frá Dokkunni.

Dokkan sendir reikning og kröfu í netbanka fyrir námskeiðsgjöldum, á þann sem skráður er sem greiðandi þegar skráning berst.

3. Afbókunarskilmálar

Afbókun af hálfu þátttakanda / greiðanda

  • Afbókun sem berst a.m.k. 7 dögum fyrir upphaf námskeiðs: full endurgreiðsla eða reikningur felldur niður, hafi hann ekki verið greiddur.
  • Afbókun 3–7 dögum fyrir námskeið: 50% endurgreiðsla eða full inneign á annað námskeið, val þátttakanda / greiðanda.
  • Afbókun innan 3 daga fyrir námskeið: ekki endurgreitt.

Skipti á þátttakanda

Fyrirtæki geta alltaf sent annan þátttakanda í staðinn án aukakostnaðar, svo lengi sem upplýsingar berast áður en námskeið hefst.

4. Breytingar eða niðurfelling af hálfu Dokkunnar

Dokkan áskilur sér rétt til að:

  • fresta eða fella niður námskeið vegna ónógrar þátttöku eða ófyrirséðra aðstæðna,
  • breyta kennara eða minni háttar dagskráratriðum.

Ef námskeið fellur niður: námskeiðsgjald er endurgreitt að fullu eða fært sem inneign að vali kaupanda.

5. Endurgreiðslur

Endurgreiðslur fara fram innan 7 daga.

6. Forföll og veikindi

Ef þátttakandi kemst ekki vegna veikinda eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna er heimilt að:

  • senda annan þátttakanda í staðinn, eða
  • óska eftir inneign á næsta námskeið, eftir atvikum.

7. Ábyrgð og þátttaka

Dokkan ber ekki ábyrgð á óbeinum kostnaði þátttakenda vegna breytinga eða niðurfellingar, svo sem ferðakostnaði eða töpuðum tekjum.

8. Persónuvernd

Persónuupplýsingar eru unnar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og aðeins notaðar vegna framkvæmdar námskeiða. Sjá nánar í persónuverndarstefnu Dokkunnar.

9. Gildistaka

Skilmálar þessir taka gildi við birtingu og geta verið uppfærðir án fyrirvara.

Öflugt þekkingar- og tengslanet fyrir stjórnendur og fagfólk í atvinnulífinu.

Vefkort

  • Fundir
  • Um okkur
  • Vinnustaðir í Dokkunni
  • Hafa samband

Fyrirtækið

  • Um Dokkuna
  • Skrá mig á Póstlista
  • Hafa samband
  • Skrá vinnustað

Aðgangur

  • Innskráning
  • Nýskráning

© Dokkan ehf. Öll réttindi áskilin.

  • Persónuverndarstefna
  • Skilmálar námskeiða