The World Economic Forum eða Alþjóðaefnahagsráðið, sem sérhæfir sig í greiningu á framtíðarfærni, hefur skilgreint 10 mikilvægustu hæfniþætti samtímans og meðal þessara þátta eru seigla, streituþol og sveigjanleiki. Dokkufundurinn er tileinkaður þessum hæfniþætti – þ.e. hvernig getum við betur fengist við erfið verkefni, streitu og óreglu – og komið heil frá öllu saman.
- Hvað er það sem stýrir líðan okkar og velgengni á vinnustað?
- Hvað veldur kvíða, vanlíðan og streitu á vinnustað sem jafnvel getur endað með kulnun?
- Hef ég eitthvað með þetta sjálf/ur að gera eða snýst þetta allt um hversu há laun ég fæ, fríðindin, eða vinnuaðstæður?
- Hvernig getum við verið í frelsi og vellíðan á vinnustað og komið í veg fyrir vanlíðan, streitu og kulnun?
- Er hægt að vera glaður, afkastamikill, frjáls og í vellíðan alla daga í vinnu? Hvernig?
Í þessum kraftmikla fyrirlestri verður þessum spurningum velt upp og svarað og farið yfir það hvernig við getum látið okkur líða vel í vinnunni. Eins verður stutt en afar áhrifarík hóp-dáleiðsla í lok fyrirlestrar sem mun hjálpa okkur að eyða streitu, þreytu og auka gleðina okkar í vinnunni!
Fyrir þá sem hafa áhuga á að prófa að hlusta á dáleiðslu er unnt að niðurhala þeim frítt hér og hlusta.
Hver verður með okkur?
Sara Pálsdóttir, dáleiðari, frumkvöðull og fyrirlesari – (og lögmaður)