Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Er það virkilega að verða normið í dag að vera foreldri nokkurra barna, að vera í fullu námi með vinnu, eiga súper aktívan vinahóp sem klífur fjöll og er alltaf í stuði – og þarna höfum ekki nefnt líkamsræktina og ultamaraþonin?
Svo erum við steinhissa á allri þessari kulnun, þreytu og streitu – þegar við reynum að þrauka daginn, vikuna, mánuðinn og árið.
En getur verið að kulnunin sé kannski skilaboð um að eitthvað í lífisstílnum sé ekki að virka?
Á Dokkufundinum verður farið yfir mismunandi leiðir til að róa taugakerfið og hlaða okkur – sérstaklega á vinnustaðnum.
Við munum kafa djúpt og virkilega skoða okkur. Ef sjálfsálitið liggur í hversu dugleg við erum…hvenær erum við þá nógu dugleg?
Hver verður með okkur?
Anna Claessen – alþjóðlega vottaður markþjálfi (ACC), einkaþjálfari og skemmtikraftur.