Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Á þessum Dokkufundi er fjallað um þá þætti í starfsumhverfinu sem stuðla að vellíðan í starfi og draga úr líkum á kulnun. Jafnframt er ítarlega fjallað um starfsmótun (e. job crafting) sem snýr að öllu því sem við getum sjálf gert til að efla eigin árangur og ánægju í starfi, hvort sem við erum stjórnendur, almennir starfsmenn eða sérfræðingar.
Starfsmótun hefur verið rannsökuð frá árinu 2001. Ítrekað hefur komið fram að einstaklingar sem starfsmóta líður betur í starfi og skila betri árangri, og starfsmótun bæði kemur á og viðheldur helgun í starfi.
Á fundinum fá þátttakendur tækifæri til að taka fyrstu skrefin í að móta eigin störf í takt við styrkleika sína og áhugasvið til að efla eigin helgun starfi.
Hver verður með okkur?
Sigrún Þorgeirsdóttir.
Hún er með BS í viðskiptafræði og hefur einnig lokið námi í hótelstjórnun og verkefnastjórnun. Hún er jafnframt með MS í þjónustustjórnun frá Háskóla
Íslands (2025). Í lokaverkefni sínu rannsakaði hún vellíðan í starfi og starfsmótun (e. job crafting).
Sigrún hefur í rúma tvo áratugi unnið ýmist sjálfstætt og innan fyrirtækja sem verkefna- og viðburðastjóri og stjórnandi. Hún hefur séð um skipulagningu fjölda ráðstefna og viðburða, komið að kennslu námskeiða um þjónandi forystu, haldið fyrirlestra og eigin námskeið um þjónustu og nú síðast um vellíðan í starfi og starfsmótun.
Sjá nánar á www.starfsmotun.is