Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Rannsóknir hafa sýnt að fólk sem setur sér skýr markmið nær meiri árangri í lífinu á hvaða sviði sem er.
Þeir sem ná langt á sínu sviði eru sjaldnast komnir þangað fyrir einskæra tilviljun, oftast liggur þrotlaus vinna og mjög skýr markmiðasetning þar að baki. Ef við höfum skýr markmið þá erum við búin að marka okkur stefnu sem við vinnum eftir. Ef við höfum engin markmið er hætt við því að við villumst af leið og vitum ef til vill ekki hvert okkur langar að stefna. Þess vegna er mikilvægt að fylgja ákveðnum skrefum í markmiðasetningu til þess að auka líkur á árangri.
Á þessum Dokkufundi verður farið yfir mikilvæg skref til þess að hámarka árangur í markmiðasetningu.
Hver verður með okkur?
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf og læknavísindum frá Háskóla Íslands.
Hún er framkvæmdastjóri Betri svefns og starfar einnig sem sálfræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni og sem nýdoktor á Landspítala.