SjálfsforystaVæntanlegur

Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.

09:00
Á Teams

Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert?

Það er auðvelt að venjast miklu álagi. Við höldum áfram, klárum verkefnin og tökum jafnvel ekki eftir því fyrr en orkan, einbeitingin og þolinmæðin eru farin að minnka – og
vinnan farin að fylgja okkur heim.

Í þessum hagnýta fyrirlestri fjallar Hugrún Linda Guðmundsdóttir um hvernig viðvarandi álag getur haft áhrif á heilsu, starfsorku, samskipti og árangur.

Áhersla verður á að þekkja streitumerkin og streituvaldana fyrr og bregðast við áður en álag þróast yfir í örmögnun eða kulnun.

Þátttakendur fá einföld verkfæri sem hægt er að nota á miðjum vinnudegi, án þess að bæta enn einu verkefninu á dagskrána.

Einnig verður skoðað hvað einstaklingurinn getur gert og hvað stjórnendur og vinnustaðurinn þurfa að taka ábyrgð á.

Hver verður með okkur?
Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA með starfsleyfi frá Landlækni, faglegur handleiðari og sérfræðingur í streitustjórnun og seigluþjálfun.
Hún starfar sjálfstætt við ráðgjöf, handleiðslu og fræðslu. Hún hefur víðtæka reynslu af því að vinna með langvarandi álag, streitutengd veikindi, örmögnun og kulnun og styðja fólk við að endurheimta heilsu og starfsorku.

Hún er einnig með diplómanám í faglegri handleiðslu, jákvæðri sálfræði á meistarastigi og mannauðsstjórnun.
Hún er líka markþjálfi og hefur lokið sérhæfðu námi í streitustjórnun, seigluþjálfun, núvitund og tengslum huga og líkama.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi