Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Framlínustjórnun; þjónusta, sala og ráðgjöf

09:00
Á Teams

Ef fyrirtækið þitt er í þjónustugeiranum, þá eru viðskiptavinir þínir ekki í samskiptum við þig sem stjórnandann eða eigandann, þeir eru í samskiptum við framlínustarfsfólkið þitt.
Þess vegna er afar mikilvægt að framlínustarfsfólkið séu að þjónusta á þann hátt að viðskiptavinurinn upplyfi þá þjónustu sem fyrirtækið vill ná fram.

Með því að leggja áherslu á viðskiptavinamiðaða sölustjórnun, sem felur í sér aðferðina “Þjónusta-Ráðgjöf-Sala” þá er salan er hluti af þjónustunni og starfsfólk á auðvelt með að sýna frumkvæði. Það leiðir af sér meiri sölu á skemmri tíma, aukna ánægju viðskiptavina og starfsfólks.

Á Dokkufundinum verður farið í gegnum hvað viðskiptavinamiðuð sölustjórnun felur í sér og nokkur mikilvæg atriði sem tengjast framlínustjórnun og þjálfun framlínustarfsfólks.

Hver verður með okkur?
Þóra Valný Yngvadóttir, viðskiptafræðingur.

Hún er viðskiptafræðingur frá Oxford Brookes University og hefur starfað í fjármálageiranum í Englandi og á Íslandi við sölustjórnun og vöruþróun.
Hún hefur m.a. hannað fjármálaþjónustur og þjálfað ráðgjafa í frumkvæði og þjónustusölu í fjölda ára. 
Þóra Valný er með vottun í verkefnastjórnun og var verkefnastjóri í Landsbankanum í fjölda ára.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi