Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...

Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Við endurtökum: Tengslanetsgreiningar – Bættu frammistöðuna með því að sjá hið ósýnilega!

    Á Dokkufundinum verður fjallað um hvernig nota má tengslanetsgreiningar til að greina möguleika sem styrkja stjórnun og breyta menningu í íslenskum og erlendum fyrirtækjum. Tengslanetsgreining (e. Organisational Network Analysis™) byggir á þeirri hugmyndafræði að til að skilja ákvarðanir, hegðun og frammistöðu einstaklinga sé nauðsynlegt að skilja félagslegt umhverfi og tengslanetið sem þeir starfa í. Tengslanetsgreining […]

  • Verður fyrirtækið þitt hluti af framtíðinni? Tækifæri á tímum breytinga

    Margrét og Ásdís hjá Gemba ásamt Birnu hjá Befirst fara yfir það hvernig fyrirtæki hérlendis og erlendis eru að tækla breyttar aðstæður eftir að Covid-19 heimsfaraldurinn umbylti starfsumhverfi og skipulagi nánast á einni nóttu. Þær velta upp þeim tækifærum sem í breytingunum felast og hvaða tól og aðferðir geta nýst vel við að halda fókus, […]

  • Ekki láta gögnin hræða þig

    Vinna með tölur og gögn er löngu orðin nauðsynleg lykilhæfni í atvinnulífinu, en oft er erfitt að vita hvar á að byrja og mörg þeirra verkfæra sem eru í boði eru ekki sérlega aðgengileg. Í þessum fyrirlestri munum við fara yfir það hvað felst í gagnadrifinni ákvarðanatöku og gagnadrifnum rekstri og hvernig hinn "venjulegi skrifstofumaður" […]

  • Aðferð þríeykisins og öflug teymisþjálfun

    Við þurfum því miður að fresta þessum Dokkufundi um óákveðinn tíma. Látum vita um leið og ný dagss. hefur verið ákveðin. Guðríður og Ingunn hjá Attentus fara yfir aðferð Þríeykisins og tengingu við teymisþjálfun Þær fara yfir hvernig þjóðin hafi í raun verið í leiðtogafræðslu með þríeykinu síðustu mánuði. „Við Íslendingar höfum fengið að njóta […]

  • Árangursrík fjarsamskipti, nokkur hagnýt ráð

    Eftir ástandið síðustu mánuði höfum við nánast öll þurft að færa einhver samskipti yfir á netið, hvort sem eru hefðfundnir fundir, teymisvinna eða kynningar. Á þessum hagnýta Dokkufundi efla þátttakendur sig í að miðla upplýsingum í gegnum netið og stuðla að árangursríkum fjarsamskiptum. Farið verður yfir lykilatriði sem snúa að framsetningu efnis, framkomu og samskiptum […]

  • Aðferðir og verkfæri verkefnastjórnunar

    Verkefni eru allt í kringum okkur bæði í vinnu og einkalífi. Okkur gengur misvel að skipuleggja verkefni og fylgja þeim eftir. Til eru ýmis verkfæri til að hjálpa okkur að afmarka verkefni, skipuleggja þau og fylgjast með framvindu þeirra. Notkun þessara verkfæra hjálpar okkur að nálgast verkefni á agaðan hátt og vinna faglega að verkefnastýringu. […]

  • Er heimilisofbeldi einkamál starfsmanns eða kemur það vinnustaðnum við?

    Með auknum tilkynningum til lögreglu um heimilisofbeldi er mikilvægt fyrir atvinnurekendur að spyrja sig hvort þeir geti lagt sitt að mörkum til að hvetja og styðja þá starfsmenn sína sem eru þolendur heimilisofbeldis og vilja leita sér hjálpar. Ísal hefur tekið til sinna ráða og hefur sett fram ákveðna aðgerðaáætlun til að koma til móts […]

  • Tryggð viðskiptavina og langtíma árangur fyrirtækisins

    Kauphegðun og væntingar viðskiptavina hafa gjörbreyst í þeim stafræna heimi sem við lifum í og samkeppnin stóraukist. Fyrirtækjum gengur misvel að aðlagast þessum breytingum. Omni channel stefnumótun með viðskiptavininn í forgrunni getur hjálpað fyrirtækjum að umbreytast í takt við væntingar viðskiptavina, auka tryggð og lantímaárangur fyrirtækisins. Á Dokkufundinum fáum við innsýn inn í lykilskref við […]

  • Hannaðu líf þitt í vinnunni

    Á þessum Dokkufundi munt þú: Fá nasaþefinn af því hvernig þú getur hannað líf þitt í vinnunni Læra aðferðir sem þú getur nýtt þér samdægurs til að hafa það skemmtilegra í vinnunni Fyrir hvern? Þig ef þér finnst ekki nógu gaman í vinnunni en ætlar samt ekki að skipta um starf. Þig ef þú ert […]

  • Lífeyrismálin okkar allra – hvað er gott að vita?

    Á vefnum

    Fyrir tæpum tveimur árum síðan vorum við með Dokkufund um lífeyrismálin okkar allra og vegna fjölda áskorana ætlum við að halda sambærilega fund núna. Við tökum sem sagt púlsinn á lífeyrismálunum. Hvernig virkar lífeyrissjóðakerfið okkar, hvað getum við gert núna til að hafa einhver áhrif á réttindi okkar í framtíðinni? Nokkrar spurningar sem við leitum […]

  • Velferðarþjónusta Samkaupa – afrakstur skýrrar mannauðsstefnu?

    Á Dokkufundinum verður fjallað um vegferð Samkaupa í áttina að því að verða einn eftirsóknarverðasti vinnustaður landsins. Stærsta skrefið í þá átt var stigið með tilkomu mannauðssviðs sem stofnað var árið 2018. Á fundinum verður fjallað um hvaða breytingar hafa verið gerðar á siðastliðnum tveimur árum og hvernig félagið hefur innleitt og framkvæmt skýra stefnu […]

  • Liðsheild gegn Covid 19

    Við ætlum aðeins að styrkja okkur í baráttunni gegn Covid 19 með því að skoða hvernig við getum elft liðsheildina á vinnustaðnum í baráttunni gegn þessari skæðu veiru. Tökum höndum saman og stöndum vörð um vinnustaðinn okkar í sameiginlegu átaki gegn Covid 19, styðjum hvert annað með viðhorfum sem hjálpa okkur að vera heima ef […]