Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Traust í teymum.

09:00
Á Teams

Traust verður sýnilegt í daglegum samskiptum, sérstaklega þegar upp koma mistök, óvissa, ólík sjónarmið eða slæmar fréttir.

Þar sem traust ríkir þorir fólk að biðja um hjálp, viðurkenna mistök, segja frá áhyggjum og ræða ágreining af hreinskilni.

Þegar traustið er lítið eykst varnarhegðun, fólk heldur frekar aftur af sér og mikilvæg samtöl eiga það til að færast út fyrir fundarherbergið.

Á þessum Dokkufundi skoðum við hvernig traust byggist upp í teymum og á vinnustöðum, hvað getur grafið undan því og hvaða áhrif hegðun stjórnenda og samstarfsfólks hefur.

Hver verður með okkur?
Vaka Ágústsdóttir, hjá VÁ ráðgjöf, www.varadgjof.is
Hún er með meistaragráðu í vinnusálfræði (M.Sc.) frá Háskóla Íslands og yfir 15 ára reynslu af fjölbreyttum hlutverkum innan mannauðs og stjórnunarráðgjafar.

Hún starfaði áður í mannauðsmálum hjá LS Retail og sem mannauðsstjóri hjá IKEA á Íslandi.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi