SjálfsforystaVæntanlegur

Hvað kostar þetta í heilsu og gæðastundum?

09:00
Á Teams

Er það virkilega að verða normið í dag að vera foreldri nokkurra barna, að vera í fullu námi með vinnu, eiga súper aktívan vinahóp sem klífur fjöll og er alltaf í stuði – og þarna höfum ekki nefnt líkamsræktina og ultamaraþonin?

Svo erum við steinhissa á allri þessari kulnun, þreytu og streitu – þegar við reynum að þrauka daginn, vikuna, mánuðinn og árið.

En getur verið að kulnunin sé kannski skilaboð um að eitthvað í lífisstílnum sé ekki að virka?

  • Fyrir hvern og af hverju er fólk að gera þetta allt?
  • Hvað kostar þetta í heilsu og gæðastundum?
  • Dugnaður…. fyrir hvern og hvað?
  • Hvenær er nóg nóg?
  • Hvenær segir líkami og sál stopp?

Á Dokkufundinum verður farið yfir mismunandi leiðir til að róa taugakerfið og hlaða okkur – sérstaklega á vinnustaðnum.

Við munum kafa djúpt og virkilega skoða okkur. Ef sjálfsálitið liggur í hversu dugleg við erum…hvenær erum við þá nógu dugleg?

Hver verður með okkur?
Anna Claessen – alþjóðlega vottaður markþjálfi (ACC), einkaþjálfari og skemmtikraftur.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi