Gervigreind og sjálfvirkni breyta vinnunni á áður óþekktum hraða.
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig traust, snerpa og styrkleikar starfsfólks verða leiðarljós í áframhaldandi þróun vinnustaða – þar sem jafnvægi tækni og mannlegra þátta ræður úrslitum.
Hver verður með okkur?
Rannveig Gústafsdóttir, stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi hjá Gallup, með bakgrunn í viðskiptafræði og félagsvísindum.
Hún hefur starfað bæði við rannsóknir og ráðgjöf og er vottaður CliftonStrengths styrkleikaþjálfi
Rannveig Gústafsdóttir á LinkedIn