Leyndarmálið og lyklarnir að frammistöðu árangri og ánægju!
Á þessum fundi fáum við að sjá uppfært efni frá Bjarti. Á þessum Dokkufundi fer Bjartur í gegnum fyrirlestur til uppbyggingar fyrir þig og vinnustaðirnn þinn. Við vitum að…
Skoða fund →
Dokkunni er ekkert mannlegt óviðkomandi og því viljum við bjóða upp á þennan frábæra fyrirlestur 💛
Daglega eiga leikskólabörn í einhvers konar árekstrum og deilum. Það er og verður óumflýjanlegt enda eðlilegur hluti þess að vera félagsvera og lifa í samfélagi við annað fólk.
Það er mikilvægt að fullorðnir geri sér grein fyrir að árekstrar og deilur eru félagsleg mistök sem börn gera og ber því að líta á þau sem námstækifæri til að efla félagslega færni sem mun nýtast börnum í öllum þeirra samskiptum um ókomna tíð.
Þrepin 6 byggja á þroskaferli barna og áratuga rannsóknum. Með því að nota þau sýnum við börnunum virðingu, lærum að umorða setningar til að hjálpa börnum að greina tilfinningar sínar, þarfir og óskir og að hlusta á aðra. Þá auðvelda þrepin 6 öllum umönnunaraðilum barna að takast á við áreksta og deilur á jákvæðan og styðjandi hátt.
Það skyldi þó ekki vera að þetta ætti líka við í heimi fullorðinna.
Hver verður með okkur?
Íris Dögg Jóhannesdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Mánagarðs og HighScope kennari