Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Dokkufundurinn er notaleg aðventustund þar sem staldrað verður við og horft bæði til baka og fram á við með áherslu á vellíðan. Við munum skerpa saman á hvernig við viljum þróast í starfi á nýju ári með hjálp Svölutékks og kíkjum fram í tímann með léttri Svöluspá.
Kryddað með innleggi um aðventuna og jólin – höldum „neyslupúkanum“ í skefjum.
Hverjar verða með okkur?
Ingibjörg Loftsdóttir sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, ráðgjafi hjá Svölum. – Ingibjörg á LinkedIn
Líney Árnadóttir sérfræðingur í starfsþróun og starfsráðgjöf, ráðgjafi hjá Svölum. – Líney á LinkedIn