Gott sjálfstraust ER sannarlega gulli betra!
Sjálfstraust er þetta eina litla, en þó risastóra, innihaldsefni í uppskrift lífsins sem getur öllu breytt fyrir það hvernig okkur líður og í hvaða átt við stefnum.
Ástand sjálfstraustsins getur jafnt komið ótrúlega mögnuðum hlutum í verk sem og kæft stórkostlega drauma í fæðingu. Gott og heilbrigt sjálfstraust breytir einfaldlega leiknum, fyrir utan að gera hann svo miklu skemmtilegri.
Heilbrigðu sjálfstrausti þarf að sinna í gegnum allt lífið ef vel á að vera, það er eins og blóm sem reglulega þarf að vökva og umpotta svo vaxa megi og dafna í allri sinni dýrð. Forsendur í upphafi eru eins mismunandi og við erum mörg og hafa auðvitað sitt að segja, en valið er þó alltaf okkar á fullorðinsárum hvað við viljum styrkja, efla og vinna með.
Kannski ertu með frábært sjálfstraust á 90% af sviðum lífsins, en svo kemur þetta eina lærdómssvið þar sem þú þarft virkilega að hafa fyrir hlutunum; heilsa, sambönd, vinna, vinir, áhugamál o.s.frv.
Kannski ertu þokkalega vel sett/ur á flestum sviðum en langar að stíga fastar og öruggara til jarðar á heildina litið.
Kannski er einhver í kringum þig sem þig langar til að styðja við og hjálpa að eignast gott sjálfstraust og aukna vellíðan í eigin skinni?
Við skoðum sjálfstraust út frá nokkrum vel völdum sjónarhornum í þessum fyrirlestri og spyrjum okkur þýðingarmikilla spurninga í því samhengi.
- Erum við fædd með sjálfstraust sem einhvern fasta, óháð því hvernig það er í byrjun?
- Getum við breytt sjálfstrausti okkar á ákveðnum sviðum, aukið það þ.e.a.s.?
- Hvernig er það þá gert?
- Hvað einkennir annars gott sjálfstraust?
- Og aðalatriðið, í raun: Hvernig vil ég hafa mitt sjálfstraust?
Þátttakendur munu taka með sér:
- Fróðleik tengdan sjálfstrausti
- Lykilspurningar í tengslum við sjálfstraust
- Hugmyndir um leiðir til að byggja upp gott/enn betra sjálfstraust
Hver verður með okkur?
Áshildur Hlín Valtýsdóttir, eigandi Hlín markþjálfunar (sjalfsthekking.is), kennari, markþjálfi og gongspilari.
Hún er með B.Ed. gráðu frá KHÍ, MA.dip í jákvæðri sálfræði frá EHÍ, hefur lokið framhaldsnámi í markþjálfun hjá Evolvia ásamt því að hafa setið fjölmörg námskeið og ráðstefnur bæði hérlendis og erlendis tengdar persónulegum vexti og sjálfsuppbyggingu. Hún er nú í MA-námi í uppeldis- og menntavísindum við HÍ.