Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur
Samspil greindar, tilfinninga- og gervigreindar
09:00
Á Teams
Við allar daglegar athafnir og ákvarðanir samnýtum við vitsmunagreind okkar og tilfinningagreind. Í þessu erindi förum við yfir hvernig þetta virkar saman og hvaða nýju áskoranir koma upp með tilkomu gervigreindarinnar og þeim gæðum sem henni fylgir. Hjördís sýnir aðeins inn í heim tilfinningagreindarinnar og þá þætti hennar sem hafa áhrif á árangur okkar í starfi og veitir nokkur góð ráð um hvernig unnt er að styrkja hjá sér tilfinningagreindina með einföldum hætti.
Hver verður með okkur?
Hjördísi Dröfn Vilhjálmsdóttir, leiðtoga- og teymisþjálfi (e. Executive and Team Coach). Hún er með alþjóðlega ACC vottun frá ICF. Hún er einnig vottuð sem tilfinningagreindarþjálfi (EQ-1 2.0) og er vottuð sem NBI-practitioner & Whole Brain Coach. Hjördís er með MSc. í stjórnun og stefnumótun og BSc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hún býr yfir áratugareynslu sem stjórnandi, ráðgjafi og greinandi. Breytinga- og krísustjórnun er hennar kjarnafærni og hún býr yfir margþættri reynslu á því sviði. Hún elskar að sjá fólk upplifa það að ná árangri umfram væntingar um eigin getu og sjá teymi vinna þannig saman að töfrar verði til. Að mati hennar felst lykillinn að árangri í hugrekki til breytinga, vel útfærðri aðgerðaráætlun og nettum sveigjanleika til að takast á við þær áskoranir sem upp koma.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Bófarnir þrír – þegar kvíði, sorg og reiði mæta í vinnuna.
Það er ákveðinn órói í íslensku samfélagi. Breytingar, hagræðing, uppsagnir og efnahagsleg óvissa setja mark sitt á vinnustaði – og tilfinningarnar fylgja með. Á þessum Dokkufundi skoðum við…
Traust verður sýnilegt í daglegum samskiptum, sérstaklega þegar upp koma mistök, óvissa, ólík sjónarmið eða slæmar fréttir. Þar sem traust ríkir þorir fólk að biðja um hjálp, viðurkenna…
Leyndarmálið og lyklarnir að frammistöðu árangri og ánægju!
Á þessum fundi fáum við að sjá uppfært efni frá Bjarti. Á þessum Dokkufundi fer Bjartur í gegnum fyrirlestur til uppbyggingar fyrir þig og vinnustaðirnn þinn. Við vitum að…