Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Samskiptasáttmáli Landspítalans, unninn m.a. úr 900 samskiptaatvikum

09:00
Á Teams

Lífið gengi svo miklu betur ef okkur öllum tækist alltaf að vanda okkur í samskiptum hvert við annað.

Á þessum Dokkufundi mun Dögg Harðardóttir kynna samskiptasáttmála, sem innleiddur var á Landspítalanum, stærsta vinnustað landsins, árið 2018.

Um 700 starfsmenn tóku þátt í að semja sáttmálann á 50 þróunarfundum þar sem unnið var úr yfir 900 atvikum samskipta og þau lögð til grundvallar.
Tilgangur samskiptasáttmála er að auka öryggi sjúklinga og bæta líðan starfsmanna.

Þetta verður skemmtilegur og hvetjandi fyrirlestur.

Hver verður með okkur?
Dögg Harðardóttir er hjúkrunarfræðingur, kennari og stjórnendamarkþjálfi.
Hún hefur 14 ára stjórnunarreynslu innan heilbrigðisþjónustunnar og starfar í stuðnings- og ráðgjafarteymi Landspítalans, sem sinnir stuðningi við starfsfólk.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi