Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Menningarnæmi og menningarfærni – ómissandi tól í samfélagi margbreytileikans

09:00
Á Teams

Stórfelld fjölgun innflytjenda, erlendra ferðamanna og aukin samskipti við fólk úr annarri menningu en íslenskri, m.ö.o. menningarlegur margbreytileiki verður sífellt áleitnari veruleiki á Íslandi og kallar á ný viðhorf og hegðun í samskiptum. Nú er fimmti hver starfandi á vinnumarkaði, einstaklingur af erlendum uppruna. Ólík tungumál, mismunandi gildi, ólíkur skilningur, annarskonar vinnumenning, tungumálaörðugleikar og fordómar eru aðeins brot af þeim óteljandi áskorunum, sem fylgja fjölþjóðlegum vinnustöðum.

Á þessum Dokkufundi verður rýnt í nýjar áskoranir, sem fylgja menningarlegum margbreytileika og vægi  heimafólks í að takast farsællega á við þessar breyttu aðstæður.  Til þess þurfum við nýjan kompás og næmari sónar en hugtökin ‚menningarnæmi‘ og ‚menningarfærni‘ eru þungavigtartól í því sambandi. Í fyrirlestrinum verða  hugtökin kynnt og krufin og sýnt fram á vægi þeirra í að virkja kraftinn, sköpunina og dýnamíkina, sem býr í margbreytileikanum og um leið hvernig draga má úr árekstrum, jaðarsetningu og útilokun þeirra sem ekki tilheyra meginstraumnum. Að lokum verða þessi hugtök rædd m.t.t. félagslegar þróunar íslensks samfélags.

Hver verður með okkur?
Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Mirru, fræðslu-, rannsókna-, ráðgjafarmiðtöðvar

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi