Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Sjálfsforysta; Hvernig og hvert ætlar þú að leiða þig?
Á þessum Dokkufundi mun Herdís Pála fjalla um hugtakið Sjálfsforystu og hvernig við getum nýtt 8 stoðir sjálfsforystu til aukins árangurs og ánægju, í starfi og í einkalífi.
Efni erindisins höfðar til allra, allra sem vilja endurskoða og betrumbæta eitthvað í eigin lífi eða starfi, en ekki síst til þeirra sem vilja vera leiðtogar annarra eða leiðtogar árangurs.
Hver verður með okkur?
Herdís Pála Pálsdóttir, mannauðsstjóri hjá EFTA.
Hún hefur lengi starfað við stjórnun, mannauðsmál, markþjálfun, kennslu, fyrirlestrahald og ráðgjöf.
Herdís Pála starfar nú sem mannauðsstjóri hjá EFTA en vinnur jafnframt að útgáfu efnis um Sjálfsforystu.