Á tímum þar sem umhverfi fyrirtækja og stofnanna einkennist af óvissu, hraða og sífelldum breytingum verður ríkari þörf fyrir teymi sem eru fær um takast á við flóknar áskoranir og verkefni.
En hver er uppskriftin að árangursríkum teymum?
Rannsóknir sýna okkur að svo kallað sálrænt öryggi gegnir þar lykilhlutverki.
Í teymum þar sem sálrænt öryggi er til staðar sjáum við meðal annars:
- Nýsköpun blómstrar
- Hraðari árangur
- Aukin gæði
- Aukin vellíðan starfsmanna
Á Dokkufundinum mun Kristrún að fjalla um hið óáþreifanlega hugtak sálrænt öryggi teyma; af hverju þetta skiptir máli fyrir árangur teyma og fara yfir praktískar leiðir til að byggja það upp.
Hver verður með okkur?
Kristún Anna Konráðsdóttir, teymis- og markþjálfi.
Kristrún Anna er reyndur verkefnastjóri & MPM, sem sérhæft hefur sig í mennska hluta verkefna; fólki & teymum.
Í dag starfar Kristrún sem teymisþjálfi og þjálfar alls konar teymi í átt að meiri árangri og meiri gleði.