Vitræn hæfniVæntanlegur

Hvað er mennskur vinnustaður, vangaveltur mannauðsstjóra Þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi mun mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar fara yfir sínar vangaveltur um hvað sé mennskur vinnustaður og hvaða leiðir hún hefur valið að fara til að viðhalda og hlúa að því í sínu starfi.

Meðal þess sem Guðfinna kemur inn á er endurgjöf, kúltúrhakk, öryggi og traust.

Hver verður með okkur?
Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir, mannauðsstjóra Þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi