Vitræn hæfniVæntanlegur

Af hverju taka skynsamir stjórnendur stundum slæmar fjárhagsákvarðanir?

09:00
Á Teams

Stjórnendur þurfa ekki að vera fjármálasérfræðingar til að taka góðar ákvarðanir, en þeir þurfa að þekkja helstu kennitölur og skilja hvernig þeir meta og taka áhættu og ákvarðanir.

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig mannlegir þættir, svo sem of mikil bjartsýni, ótti við tap og tilhneiging til að verja fyrri ákvarðanir, geta haft áhrif á ákvarðanir um fjárfestingar, kostnað og fjármögnun.

Hver verður með okkur?

Sólveig R. Gunnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri STRATA Advisory.

Hún hefur löggildingu sem verðbréfamiðlari og víðtæka reynslu af fyrirtækjaráðgjöf, meðal annars á sviði fjármögnunar, verðmats og endurskipulagningar. Hún situr í stjórnum Eventum Travel, GeoSilica og Disact og hefur áður setið í stjórnum KEA Hótela og Ölgerðarinnar.

Sólveig er stundakennari í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá HÍ og MBA-gráðu frá Hult International Business School í Bandaríkjunum og Kína. Sólveig hefur jafnframt starfað á alþjóðavettvangi. 

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi