Vitræn hæfniVæntanlegur

Árangursrík rekstrarstjórnun á tímum gervigreindar

09:00
Á Teams

– Hlutverk áætlanagerðar, fjárhagsupplýsinga og virkrar eftirfylgni.

Hvernig geta stjórnendur nýtt fjárhagsupplýsingar, áætlanagerð og gervigreind til að bæta rekstrarárangur fyrirtækja?

Góður rekstur byggist á skýrum markmiðum, vandaðri áætlanagerð og markvissri eftirfylgni. Til að ná árangri þurfa stjórnendur á öllum stigum skipulagsheildarinnar að skilja reksturinn, þekkja sína ábyrgð og hafa aðgang að upplýsingum sem nýtast við daglega ákvarðanatöku.

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig hægt er að breyta fjárhagsupplýsingum úr hefðbundnum uppgjörsgögnum í virkt stjórntæki sem eykur yfirsýn, styrkir rekstrarlega ábyrgð og styður við betri afkomu. Jafnframt verður skoðað hvernig ný tækni og gervigreind geta auðveldað stjórnendum að greina reksturinn, skilja frávik og taka upplýstari ákvarðanir.

Hver verður með okkur?

Mikael Arnarson er framkvæmdastjóri Advise og hefur um 20 ára reynslu af fjármála- og rekstrarráðgjöf, meðal annars hjá KPMG Advisory auk þess að hafa sinnt kennslu við Háskólann í Reykjavík.
Hann hefur komið að uppsetningu og þróun fjárhags- og rekstrargreininga fyrir hátt í 400 fyrirtæki og unnið náið með stjórnendum að því að bæta upplýsingagjöf, rekstraryfirsýn, áætlanagerð, stjórnun og ákvarðanatöku.

Mikael er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á fjármál og rekstur fyrirtækja.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi