Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
***ATH. Beðist er velvirðingar á hljóðtruflunum á nokkrum stöðum í upptökunni frá þessum fundi.***
Á þessum Dokkufundi kynnir Victor Guðmundsson, læknir og stofnandi Lifeline Health, Heilsustólinn; einfalda nálgun sem hann hefur þróað til að útskýra hvernig fjórar grunnstoðir heilsunnar: hreyfing, næring, svefn og andleg líðan, vinna saman.
Fjallað verður um hvernig Lifeline Health nýtir þessa nálgun til að skoða heilsu fólks heildrænt og færa áhersluna frá því að bregðast við veikindum yfir í að efla heilsu og fyrirbyggja vandamál.
Victor tengir saman læknisfræðilega þekkingu, reynslu sína af heilsueflingu og hagnýt dæmi úr daglegu lífi.
Markmiðið er að þátttakendur fái einfaldari sýn á eigin heilsu og hugmyndir að raunhæfum breytingum sem geta skilað árangri til lengri tíma.
Hver verður með okkur?
Victor Guðmundsson, læknir, frumkvöðull og tónlistarmaður.
Hann er með brennandi áhuga á heilsu, nýsköpun og tónlist.
Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Lifeline Health og Fjarlækninga og hefur einnig komið að uppbyggingu LifePass.
Samhliða starfar Victor sem tónlistarmaður undir nafninu Doctor Victor, þar sem hann sameinar bakgrunn sinn í læknisfræði og tónlist.
Í störfum sínum leggur hann áherslu á að nýta nýsköpun og fræðslu til að bæta heilsu og lífsgæði fólks.