Streita
Á þessum Dokkufundi… Nánari lýsing væntanleg. Hver verður með okkur? Hugrún Linda Guðmundsdóttir hjá Líf og starf. Hún hefur sérhæft sig í streitustjórnun og Mind Body medicine sem…
Skoða fund →
Í samfélaginu okkar er gríðarlega mikill áhugi á heilsu, við lesum alls skyns bækur og greinar um heilsu og hvernig við getum haft áhrif á eigin líkamlega og andlega heilsu. Mjög margt getur haft áhrif á hvernig við upplifum eigin heilsu og má þarf nefna umræðu í samfélaginu (samfélagsmiðum), heilsufar fólksins í kringum okkur og að sjálfsögðu hvernig okkur líður – og hvernig við viljum að okkur líði.
Því kemur það ekki á óvart að aukinn áhugi hafi vaknað á heilsukvíða á síðastliðnum árum og áratugum en heilsukvíði einkennist af óhóflegum og hamlandi kvíða þar sem fólk óttast að vera haldið alvarlegum sjúkdómi þrátt fyrir að niðurstöður læknisskoðana og rannsókna bendi til annars.
Á Dokkufundinum fáum innsýn í hvað heilsukvíði er, hvernig hann birtist og hvað er til ráða.
Hver verður með okkur?
Sóley Dröfn Davíðsdóttir, klínískur sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni.