Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Á þessum Dokkufundi verður kynnt hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar, um ávinning hæglætis fyrir samfélagið.
Hæglætishreyfingin er hreyfing fólks sem hefur tileinkað sér eða hefur áhuga á að tileinka sér hæglæti (e. slow living, einnig simple-living). Hæglæti er svar við hraða og streitu samfélagsins. Hæglæti er val um að lifa meðvitað og að hafa stjórn á og val um það hvernig maður ver tíma sínum. Hæglæti getur auðveldað okkur að verða meðvituð um að við höfum val um ákvarðanir og viðbrögð við aðstæðum og þar með að upplifa okkur ábyrg fyrir eigin líðan, heilsu og samskiptum okkar við aðra.
Hver verður með okkur?
Þóra Jónsdóttir, formaður Hæglætishreyfingarinnar.