Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Í hverju gleymdir þú þér sem barn? Hvað veitir þér ánægju í dag?
,,Dellur“ hafa stundum fengið neikvætt hlaðna merkingu í daglegu tali en í ,,dellum“ felast heilmikil lífsgæði.
Á þessum Dokkufundi verður fjallað um nærandi athafnir í leik og starfi og hvernig þær hafa jákvæð áhrif á heilsu, vellíðan, endurheimt og streitulosun.
Hvað eru nærandi athafnir fyrir þér? Hvar birtast þær í vinnu? Áhugamálum? Heimilisstörfum? Nærandi athafnir geta falist í einhverju sem hefur fylgt okkur í gegnum lífið en þær geta líka birst í nýrri iðju og nýjum áhugamálum. Afhverju fóru allir að baka súrdeigsbrauð? Hvar gleymir þú þér í flæði?
Fjallað er um styrkleika, flæðiskenningu Mihaly Csikszentmihalyi (flow theory), tengsl og fleiri áhrifamikla grunnþætti lífsgæða sem hafa áhrif á jákvæða heilsu í lífi og starfi.
Hver verður með okkur?
Ingibjörg Valgeirsdóttir hjá Saga Story House.
Ingibjörg hefur MBA, MA-diplóma í jákvæðri sálfræði og BA-uppeldis- og menntunarfræði.