Traust í teymum
Á þessum Dokkufundi… Hver verður með okkur? Vaka Ágústsdóttir, hjá VÁ ráðgjöf, www.varadgjof.is Hún er með meistaragráðu í vinnusálfræði (M.Sc.) frá Háskóla Íslands og yfir 15 ára reynslu…
Skoða fund →
Við viljum öll hafa afkastamikla starfsmenn, ná markmiðum og skapa góða vinnustaðamenningu.
En hvað ef aðferðirnar sem við notum til að stjórna frammistöðu eru í raun að ýta undir allt aðra hegðun og menningu en við ætlum okkur?
Á þessum Dokkufundi ætlum við að skoða hvernig stjórnun frammistöðu getur ýtt undir jákvæða hegðun, góð samskipti og þá menningu sem vinnustaðurinn vill byggja upp.
Fjallað verður um hvers vegna frammistöðustjórnun þarf að vera hluti af daglegu starfi – ekki bara árlegt samtal eða ferli í mannauðskerfinu.
Markmiðið er að þátttakendur fari frá fundinum með nýja sýn á frammistöðustjórnun og hagnýtar hugmyndir um hvernig hún getur orðið öflugt tæki til að skapa bæði betri árangur og betri vinnustaðamenningu.
Hver verður með okkur?
Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir, en hún er með PhD í atferlisgreiningu (Behavior Analysis), með áherslu á endurgjöf á vinnustað.
Hún er dósent í stjórnun við Oslo Metropolitan University, stjórnenda- og fyrirtækjaráðgjafi hjá R+ og framkvæmdastjóri Magnea.
Hún hefur stundað rannsóknir á frammistöðustjórnun og hefur jafnframt víðtæka reynslu af hönnun og innleiðingu frammistöðustjórnunarkerfa á Íslandi og í Noregi.
Sérsvið hennar er Organizational Behavior Management (OBM), þar sem áhersla er lögð á að nota vísindalegan skilning á hegðun til að hanna vinnuumhverfi sem skapar árangur.
Í nálgun hennar er áhersla á að með góðri stjórnun er hægt að skapa aðstæður þar sem bæði fólk og fyrirtæki ná betri árangri.