Leiðtogahlutverkið á tímum breytinga
Þegar óvissan eykst verður leiðtogahlutverkið sýnilegra en nokkru sinni. Breytingar reyna ekki aðeins á skipulag, ferla og ákvarðanir. Þær reyna á fólk. Þegar svörin eru ekki öll til…
Skoða fund →
Fyrirtæki og stofnanir með fleiri en 50 starfsmenn þurfa að uppfylla lagaskyldu um skýrslugjöf um kynbundinn launamun sem felur í sér skil á gögnum sem sýna fram á að launakerfi þeirra mismuni ekki á grundvelli kyns.
Hvaða gögnum þarf að skila, hvernig eru þau greind og hvar er best að byrja?
Á þessum Dokkufundir verður farið yfir kröfur laganna, fyrstu skrefin í skýrslugjöf um kynbundinn launamun, algengar áskoranir og hagnýt ráð til að hefja vegferðina.
Hver verður með okkur?
Bryndís Elfa Valdemarsdóttir sérfræðingur á Jafnréttisstofu.
Jafnréttisstofa vinnur að því að efla jafnrétti í íslensku samfélagi. Stofnunin veitir ráðgjöf, fræðslu og upplýsingar. Einnig fylgist hún með stöðu jafnréttismála og hvetur til jákvæðra breytinga. Jafnréttisstofa sinnir eftirliti með jafnréttislögum, styður við forvarnir gegn mismunun og ofbeldi og vinnur að því að tryggja jöfn tækifæri í samfélaginu og á vinnumarkaði.
Jafnréttisstofa starfar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði og lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.