Leiðtogahæfni / StjórnunVæntanlegur

Ósýnilegu áhrifin: Hvernig leiðtogar hafa áhrif án þess að átta sig á því.

09:00
Á Teams

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hegðun okkar og viðbrögð, sem geta haft heilmikil áhrif á samstarfsfólk okkar, ekki síst þegar við erum í forystuhlutverki.

Heilinn okkar og taugakerfið er þó þannig byggt upp að oftar en ekki erum við í vanahegðun og tökum varla eftir því sem við gerum.

Þegar álag á okkur eykst verður þessi tilhneiging enn sterkari. 

Í erindinu verður skoðað hvað þetta þýðir í daglegu starfi leiðtoga.
Hvaða áhrif hafa viðbrögð okkar á fólkið í kringum okkur? Hvað lærir fólk af þeim? Og hvernig getur þessi daglega hegðun smám saman haft áhrif á það umhverfi sem verður til á vinnustaðnum og þar með t.d. á frumkvæði, ábyrgð og traust?

Í erindinu verður m.a. komið inn á taugavísindi, sálfræðilegt öryggi, aðferðir markþjálfunar og embodiment coaching.

Ragnheiður tengir það svo við eigin reynslu úr mannauðsstörfum og vinnu með stjórnendum. 

Hver verður með okkur?
Ragnheiður Björgvinsdóttir. Hún er ACC vottaður markþjálfi, með meistarapróf í mannauðsstjórnun og er líka Certified Embodiment Coach.

Hún hefur unnið lengi í mannauðsmálum, bæði á einkamarkaði og hjá opinberum stofnunum.

Í dag starfar hún sjálfstætt við markþjálfun og mannauðsráðgjöf. 

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi