Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Jákvæð verkefnastjórnun

12:00
Á Teams

Í seinni tíð hafa vinnuveitendur verið að átta sig á mikilvægi þess að taka mið af hamingju og vellíðan sinna starfsmanna. Sérstaklega á það við hjá starfsmönnum þar sem ríkir krafa um góð og ánægjuleg samskipti, lausnamiðað hugarfar, skilvirkni, ákveðin afköst og ábyrgðakennd.

Að stjórna verkefni er krefjandi starf og það þarf einstakling með fjölbreytta hæfileika, tæknilega og mannlega, til að verða áhrifaríkur verkefnastjóri. Með hliðsjón af því er hér horft til þeirra þátta í faglegri jákvæðri sálfræði sem geta stuðlað að eftirsóknarverðum árangri í stjórnun verkefna.

Áherslur.

  • Verkefnastjórnun – teymið og verkefnastjórinn – þróun og áherslur
  • Hvað er jákvæð sálfræði og tenging við verkefnastjórnun
  • Jákvæð forysta í verkefnastjórnun
  • Einkenni árangursríkra verkefnisteyma

Hver verður með okkur?
Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi