Leyndarmálið og lyklarnir að frammistöðu árangri og ánægju!
Á þessum fundi fáum við að sjá uppfært efni frá Bjarti. Á þessum Dokkufundi fer Bjartur í gegnum fyrirlestur til uppbyggingar fyrir þig og vinnustaðirnn þinn. Við vitum að…
Skoða fund →
Lífið gengi svo miklu betur ef okkur öllum tækist alltaf að vanda okkur í samskiptum hvert við annað.
Á þessum Dokkufundi mun Dögg Harðardóttir kynna samskiptasáttmála, sem innleiddur var á Landspítalanum, stærsta vinnustað landsins, árið 2018.
Um 700 starfsmenn tóku þátt í að semja sáttmálann á 50 þróunarfundum þar sem unnið var úr yfir 900 atvikum samskipta og þau lögð til grundvallar.
Tilgangur samskiptasáttmála er að auka öryggi sjúklinga og bæta líðan starfsmanna.
Þetta verður skemmtilegur og hvetjandi fyrirlestur.
Hver verður með okkur?
Dögg Harðardóttir er hjúkrunarfræðingur, kennari og stjórnendamarkþjálfi.
Hún hefur 14 ára stjórnunarreynslu innan heilbrigðisþjónustunnar og starfar í stuðnings- og ráðgjafarteymi Landspítalans, sem sinnir stuðningi við starfsfólk.