Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Skiptir félagslegur stuðningur á vinnustað máli? Tengsl félagslegs stuðnings, starfsánægju, eineltis og áreitni á vinnustað

09:00
Á Teams

Mikilvægt er að starfsfólki líði vel á vinnustaðnum enda verja flestir stórum hlutaævinnar þar. Vellíðan á vinnustað hefur áhrif bæði á lífsgæði starfsfólks sem og verðmætasköpun fyrirtækja og þjónustugæði stofnanna. Það eru ýmsir þættir í vinnuumhverfinu sem geta valdið vanlíðan hjá starfsfólki og er einelti og áreitni á vinnustað talin hafa neikvæð áhrif á starfsfólk og þar með starfsánægju. Félagslegur stuðningur á vinnustað er hins vegar talinn verndandi þáttur gegn neikvæðum þáttum í vinnuumhverfinu.

Hjördís Sigursteinsdóttir og Fjóla Björk Karlsdóttir rannsökuðu árið 2019 tengsl félagslegs stuðnings, starfsánægju, eineltis og áreitni á vinnustað meðal starfsmanna 13 íslenskra sveitarfélaga og ætlar Fjóla að kynna niðurstöðurnar á Dokkufundinum.

Hver verður með okkur?
Fjóla Björk Karlsdóttir, aðjunkt við Háskólann á Akureyri.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi