Langar þig að verða alvöru hlaupari, náttúruhlaupari, skemmtilskokkari eða bara hlaupadúllari?
Alveg sama hvernig hlaupari þú vilt vera, það er alltaf best að byrja rétt eða leiðrétta sig áður en langra er haldið. Fjölmargir hendast upp úr sófanum (sérstaklega í janúar), reima á sig hlaupaskó og strunsa af stað – og markmiðið er langoftast að hlaupa bara rosalega hratt. En er það besta aðferðin?
Sennilega ekki – en á Dokkufundinum fáum við að vita allt um það hvernig best er að hefja hlaupaferilinn og líka ef við erum þegar í ágætis hlaupagír, hvað getum við gert betur.
Hver verður með okkur?
Sigurður Örn Ragnarsson hjá Greenfit, Íslandsmeistari í þríþraut og einn okkar besti sérfræðingur í æfingaálagi, ferlum og uppbyggingu.