Staldraðu við áður en þú keyrir þig út.
Hvernig tökum við eftir álaginu áður en það fer að kosta okkur heilsu, starfsorku og ánægju – og hvað getum við gert? Það er auðvelt að venjast miklu…
Skoða fund →
Það eru ekki nýjar fréttir að það sé mikið af breytingum í gangi eða að þær verði alltaf meiri og hraðari með hverju árinu sem líður – en hvernig er best að móta og/eða taka þátt í breytingunum, í stað þess að verða fyrir breytingunum?
Þessum og fleiri tengdum spurningum verður svarað á fundinum.
Að auki verður komið stuttlega inn á nýjan vef Dokkunnar og dagskrána næstu mánuði.
Hver verður með okkur?
Herdís Pála Pálsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Dokkunnar, reyndur stjórnandi, stjórnarkona, kennari, fyrirlesari, markþjálfi/coach, stjórnunarráðgjafi og alls konar annað skemmtilegt.
Hún er með MBA-gráðu frá University of New Haven, CT, USA, B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands, hefur lokið námi í Executive Coaching frá HR og sótt fjölda ráðstefna og námskeiða í gegnum tíðina. Síðasta námskeið sem hún tók var í Claude-Cowork.