Persónuleg og félagsleg hæfni / Power SkillsVæntanlegur

Hvernig er umsóknarferlið um opinber störf?

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum fáum við innsýn í umsóknar- og ráðningarferlið þegar ráðið er í störf hjá hinu opinbera. Ferlið er margslungið og að mörgu þarf að hyggja þegar sótt er um störf þar.  Gagnsæ og vönduð vinnubrögð eru afar mikilvæg í opinberum ráðningum.  Við fáum að skyggnast inn í valferlið og hvernig staðið er að mati á umsóknum, hvað skiptir máli í framsetningu umsóknargagna, hlutverki hæfniskrafna og hvernig haga megi undirbúningi fyrir atvinnuviðtöl.

Hver verður með okkur?

Geirlaug Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs.

Geirlaug  hefur starfað við ráðningar og mannauðsráðgjöf hjá Hagvangi sl. 10 ár og komið að fjölmörgum ráðningum hjá hinu opinbera, bæði ríki og sveitarfélögum og jafnframt starfað með hæfnisnefndum.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi