Aðferðir til að greina ferla og rita leiðbeiningar um verklag sem er skýrt og aðgengilegt fyrir þann hóp starfsmanna sem á að tileinka sér það.
Námskeiðið er miðað að þörfum þeirra sem vinna að ferlagreiningu og gerð verklagsreglna og vinnulýsinga (SOP). Námskeiðið byggir á viðurkenndri aðferðafræði og er óháð kerfum sem unnið er með.
Öll fyrirtæki byggja á þekkingu um hvernig best er að reka viðkomandi fyrirtæki og það er sú þekking sem gerir fyrirtæki verðmæt, sem sagt, uppskriftin að vörunni, þjónustunni og innviðunum. Við þekkjum öll sérleyfi (franchise) í veitingahúsa-, hótel-, endurskoðunar- og ráðgjafageiranum, en þau byggja á handbók sem er uppskriftin að því hvernig best er að reka fyrirtækið. Á þessu námskeiði er farið yfir leiðir til að greina ferla og verklag og setja það fram í handbók fyrirtækisins, þannig að starfsmenn skilji og séu fljótir að tileinka sér það. Þekking á ferlagreiningu er hjálplega í flestum störfum og ef ekki í vinnunni, þá heima fyrir.
Námskeiðið er stutt og hagnýtt þar sem farið verður í gegnum eftirfarandi þætti:
Námskeiðið fer fram með fyrirlestri, myndskeiði, umræðum og verkefni.
Þátttakendur þurfa ekki að nota fartölvu á námskeiðinu.
Námskeiðið er miðað að þörfum þeirra sem vinna að ferlagreiningu og gerð verklagsreglna og vinnulýsinga (SOP). Námskeiðið byggir á viðurkenndri aðferðafræði og er óháð kerfisnotkun.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri leiðir til þess að greina ferla og rita leiðbeiningar um verklag sem er skýrt og aðgengilegt fyrir þann hóp starfsmanna sem á að tileinka sér það.
Kristín Björnsdóttir, rekstrarhagfræðingur og sérfræðingur hjá Origo, er með áratuga reynslu af gæðastjórnunar og innleiðingu hennar hjá fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum. Þá hefur hún yfir 30 ára reynslu af kennslu hjá háskólastofnunum, Íslandsstofu og öðrum námskeiðahöldurum.
27. maí 2020 – kl. 9.00 til 12.00
Nordica Hotel, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Morgunverður að hætti Natura frá. kl. 8.40