Vitræn hæfniVæntanlegur

Vaktavinna: Svefn og áhrif skerðingar svefns á heilsu, líðan og öryggi í starfi – nokkur góð ráð

09:00
Á Teams

Fræðsla um svefn og áhrif skerðingar svefns á heilsu, líðan og öryggi í starfi, hófst sem átak fyrir starfsmenn, stjórnendur og vaktasmiði á Landspítala 2019 og er rafræn fræðsla í fræðslukerfi spítalans í dag fyrir þessa hópa.

Markmið fræðslunnar er að bæta vinnuskipulag og niðurröðun vakta, auka gæði vaktaáætlana og auka vitund starfsmanna á þáttum sem geta dregið úr vinnutengdu álagi og eflt heilsu þeirra og vellíðan.

Á Dokkufundinum fáum við innsýn í góð og aðferðir sem hægt er nota í vaktavinnu og við aðrar aðstæður þar sem svefninn skerðist og getur haft áhrif á daglega störf.

Gagnleg fræðsla fyrir alla sem búa við skertan eða óreglulegan svefn t.d. foreldra með ungabörn, starfsfólk í flugþjónustu, hjúkrunarheimila og bara alla sem þurfa að takast á við óreglulegan svefn og sveiflur í gegnum sólarhringinn.

Hver verður með okkur?

Berglind Helgadóttir, sjúkraþjálfari með MSc í lýðheilsuvísindum frá HÍ. Berglind hefur starfað sem starfsmannasjúkraþjálfari á Landspítala frá 2007.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi