Sjálfsvitund stjórnenda og áhrif hennar á tilfinningalíf starfsmanna
09:00
Á Teams
Sjálfsvitund stjórnenda er mun mikilvægari en oft hefur verið talið. Flestir telja sig hafa sjálfsvitund en raunin er sú að það hafa hana ekki margir. Stjórnendur sem hafa áhuga á því að efla sjálfsvitund sína hafa hins vegar mikil áhrif til hins betra á tilfinningalíf starfsmanna sem skilar sér í því að þeir vera ánægðari á vinnustað. Í fyrirlestrinum verður farið yfir sjálfsvitund og hvers vegna hún er mikilvæg stjórnendum og vinnustöðum – og auðvitað öllum sem vilja auka skilning sinn á sjálfum sér og öðrum.
Hver verður með okkur? Sólveig Ragnarsdóttir, lögfræðingur og MSc. Í meistaranámi sínu lagði Sólveig sérstaka áherslu á mannauðs- og stjórnendafræði sem leiddu til skrifa hennar um sjálfsvitund stjórnenda. Í dag starfar Sólveig sem deildarstjóri á skrifstofu forstjóra hjá Lyfjastofnun.
Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Starfsmótun: árangursrík leið til að efla ánægju og árangur í starfi.
Á þessum Dokkufundi er fjallað um þá þætti í starfsumhverfinu sem stuðla að vellíðan í starfi og draga úr líkum á kulnun. Jafnframt er ítarlega fjallað um starfsmótun…