Vitræn hæfniVæntanlegur

Hvaðan ertu? Hvernig er gott að takast á við fordóma á vinnustað frá sjónarhorni innflytjenda og flóttamanna?

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum verður lögð áhersla á að skilja og takast á við fordóma inni á vinnustöðum út frá sjónarhorni flóttafólks og innflytjenda. Farið verður yfir þær áskoranir sem einstaklingar með fjölbreyttann menningarbakgrunn standa frammi fyrir, þar á meðal áhrif fordóma og mismununar á starfsreynslu. Með áherslu á menningarnæmi munum við ræða aðferðir til að skapa umhverfi sem tekur á móti og styður flóttamenn og innflytjendur ásamt því hvernig efla  má tilfinninguna um að tilheyra vinnustaðnum.

Áherslur:

  • Reynsla flóttamanna og innflytjenda: Að skilja þær áskoranir sem einstaklingar sem hafa sest að í nýju landi standa frammi fyrir, þar á meðal tungumálahindranir og menningaraðlögun en einnig ný og jafnvel framandi vinnustaðaviðmið.
  • Fordómar og mismunun: Fordóma og mismunun sem flóttamenn og innflytjendur geta lent í á vinnustaðnum, þar á meðal staðalímyndir, útilokun og kerfisbundnar hindranir sem koma í veg fyrir starfsframa.
  • Inngildandi starfshættir: Við könnum aðferðir til að efla þátttöku án aðgreiningar, svo sem þjálfun í menningarnæmi, tungumálastuðning, leiðbeinandaprógram og að skapa tækifæri til þvermenningarlegra samskipta.
  • Menningarnæmi: Þróa meðvitund um fjölbreytt menningarleg viðmið, hefðir og samskiptastíl til að skapa virðingarvert og inngildandi vinnuumhverfi.
  • Að byggja brýr: Að draga fram árangursrík dæmi um vinnustaði sem hafa í raun aðhyllst fjölbreytileika og náð að samþætta reynslu og sjónarmið flóttafólks og innflytjenda í menningu sína.

Markmiðið er að veita þátttakendum dýpri skilning á einstökum áskorunum sem flóttamenn og innflytjendur standa frammi fyrir á vinnustaðnum. Á sama tíma mun þessi fyrirlestur bjóða upp á raunhæfar aðferðir til að hlúa að inngildingu og menningarnæmi sem kemur öllum starfsmönnum til góða og auðgar vinnuumhverfi.

Hver verður með okkur?
Jasmina Vajzovicer, innflytjandi, flóttakona, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda.
Jasmina kom til Íslands fyrir tuttugu árum, sem barn á flótta, ásamt foreldrum sínum. Hún fæddist í Bosníu og Hersegóvínu og bjó þar sem barn á meðan stríðið geisaði í landinu á árunum 1992-1995. Hún upplifði að búa við stríðsástand og hvernig er að vera barn á flótta í sínu eigin landi. Meira um  reynslu og lífshlaup Jasminu hér.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi