SjálfsforystaVæntanlegur

Vorið – heilsa, næring og vellíðan, heilsupepp inn í sumarið

09:00
Á Teams

Á Dokkufundinum verður farið yfir þætti sem snúa að næringu og heilsueflandi lífsstíl, þætti sem við getum öll tileiknað okkur með lítilli fyrirhöfn og öðlast þannig enn betri heilsu og látið okkur líða enn betur. Áhersla er lögð á heildræna nálgun á heilsu og heilsueflingu að hætti Ásdísar grasalæknis.

Hver verður með okkur?
Ásdís Ragna Einarsdóttir, grasalæknir og sérfræðingur hjá Greenfit. Ásdís Ragna er með BSc í grasalækningum frá University of East London og MPH í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands. 

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi