Vitræn hæfniVæntanlegur

Erfðaréttur 101

09:00
Á Teams

Vilt þú vita hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Hvaða reglur gilda og hverju er hægt að breyta?

Á Dokkufundinum verður farið yfir meginreglur erfðalaga og leitast verður við að svara helstu spurningum sem vakna varðandi erfðamál og hvaða reglur gilda um erfðaskrár og kaupmála.

Hver verður með okkur?
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður. Hún er stofnandi fyrirtækisins BÚUM VEL, sem er sérhæfð lögfræðiþjónusta vegna búsetuskipta. Þá veitir hún viðskiptavinum stuðning og ráðgjöf við dánarbússkipti og ýmsa löggerninga á sviði erfðaréttar.
Fyrirtækið veitir nýja tegund þjónustu á íslenskum fasteignamarkaði.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi