Leiðtogahæfni / StjórnunVitræn hæfniVæntanlegur

Sprettnálgun – hættu að eyða tímanum í endalausa fundi

09:00
Á Teams

– erindi um hvernig teymi leysa stórar áskoranir með hugviti og réttri sprettnálgun.

Flest teymi þekkja þetta: sama áskorunin er rædd fund eftir fund, allir hafa skoðun, ekkert er prófað og starfshópur eða teymi er sett á fót sem hittist í nokkra mánuði áður en fyrstu drög liggja fyrir. Sprettir eru notaðir við lausn ólíkra verkefna, t.d. stefnumótandi lausna, nýsköpunar, vöruþróunar og til að koma ákvörðun í framkvæmd.

Hugvitið í teyminu er oft nægt til að leysa áskorunina en það vantar oft skipulagða aðferð til að nýta það á skipulagðan og skilvirkan hátt.

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir hvernig sprettnálgun kemur í stað endalausra funda: rétt fólk kallað að sama borði í afmarkaðan tíma, unnið eftir skýru verklagi og hætt með niðurstöðu sem hægt er að hefjast handa við.

Sprettir eru þó ekki allir eins.

Uppgötvunarsprettur svarar spurningunni „erum við að leysa rétta vandann?“, Scrum- eða framkvæmdasprettur svara „erum við að koma lausninni í verk?“ og Kanban svarar „höfum við yfirsýn og flæði?“.

Rangur sprettur er dýrasti spretturinn – og algengustu mistökin eru að hefja sprett áður en áskorunin er nægilega vel skilgreind.

Á fundinum verður farið yfir fimm skref uppgötvunarsprettsins, fimm ákvarðanir sem ráða því hvort sprettur skilar niðurstöðu – áskorunina, teymið, lóðsinn, tímann og framhaldið – og hvernig nálgunin var notuð til að breyta óljósri áskorun þvert á stofnanir í forgangsröðuð verkefni sem hófust strax.

Hver verður með okkur?
Fjóla María Ágústsdóttir, umbóta-, stefnu- og teymisráðgjafi og stofnandi Fit4digital.

Hún kennir spretthugsun og teymisvinnu í Opna háskólanum í HR og í MBA-námi HÍ og þjálfar teymi og leiðtoga í að leiða spretti og stilla þeim upp.

Fjóla var áður stafrænn leiðtogi samstarfs sveitarfélaga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, verkefnastjóri og þjónustuhönnuður hjá Stafrænu Íslandi og verkefnastjóri stefnumótunar og þróunar innan stjórnarráðsins.

Hún er með MBA-gráðu, B.Sc. frá raunvísindadeild HÍ, IPMA C-vottun í verkefnastjórnun og Agile Scrum Master-vottun.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi