– Reynsla, ákvarðanir og lærdómur úr vegferð ON.
Á þessum Dokkufundi deilir Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Verkefnastofu Orku náttúrunnar, reynslu af uppbyggingu verkefnastofu og verkefnamenningar á síðustu árum.
Fjallað verður um raunveruleg dæmi, áskoranir, ákvarðanir og lærdóm á vegferðinni, allt frá því að skýra hlutverk og þjónustu verkefnastofunnar yfir í stjórnarhætti, sameiginleg vinnubrögð og verkefnamenningu.
Erindið er hagnýt og heiðarleg umfjöllun um það sem hefur reynst vel, það sem gekk síður og hvað þarf í raun til að efla verkefnastofu og skapa varanleg áhrif.
Hver verður með okkur?
Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu hjá Orku náttúrunnar.
Í starfi sínu ber hún ábyrgð á verkefnastýringu fjárfestingaverkefna og verkefnaskráarstýringu fyrirtækisins.
Hún er með MSc-gráðu í iðnaðarverkfræði og IPMA B-vottun í verkefnaskráarstýringu.
Kristín hefur starfað hjá ON í rúman áratug og komið að uppbyggingu verkefnastofu, þróun verkefnamenningar, innleiðingu verkefnaaðferða og eflingu verkefnastjórnunarhæfni innan fyrirtækisins. Hún brennur fyrir faglegri verkefnastjórnun og því að hjálpa fólki og teymum að ná árangri í flóknu verkefnaumhverfi.