Vitræn hæfniVæntanlegur

Að sjá tækifæri og hlaupa með það

09:00
Á Teams

Tækifærin eru sjaldan vandamálið, valið er vandamálið.

Á þessum Dokkufundi verður fjallað um hvernig verðmæti verða til þegar þú velur eitt tækifæri, mælir hratt og þorir að stoppa.

Katrín tengir þetta svo við það sem hlaupin hafa kennt henni um hraða.

Hver verður með okkur?
Katrín Atladóttir. Hún er hugbúnaðarverkfræðingur sem starfar hjá Dohop, þar sem hún byggir upp og rekur neytendavöruna WAYA.

Hún er einnig pistlahöfundur í Viðskiptablaðinu og hlaupari.

Hæfniþættir: Á Dokkufundum er fjallað um efni í samræmi við nýlegar hæfnirannsóknir, um hvaða hæfni er æskilegt í dag og talið er að verði í eftirspurn á næstu árum, hvort sem horft er til vinnu og vinnumarkaðar, eða til að dafna í samfélagi framtíðarinnar.
Hæfnirammi