Allflest fyrirtæki og skipulagsheildir eru að kljást við krefjandi kringumstæður og vandamál í dag.
Viðskiptaumhverfi hefur á síðastliðnum 1-2 áratugum hratt þróast frá því að byggja á vissum fyrirsjáanleika þar sem langtíma skipulag skilaði góðum árangri; yfir í flóknari og flæktari aðstæður þar sem augljós svör og lausnir eru undantekningin frekar en reglan.Síðustu 4-5 ár hafa sérstaklega kennt okkur þessa lexíu.
Þegar langtímaplön hætta að virka og einfaldar og augljósar lausnir duga ekki til að leysa vandamál og áskoranir… hvað er þá til ráða? Í stuttu máli þurfum við að öðlast aukna lipurð og aðlögunarfærni.
Á Dokkufundinum verður meðal annars farið í gegnum:
- Muninn á einföldum vs. flóknum vs. “óþekkum” vandamálum
- Nálganir og prinsipp sem virka vel á þessar ólíku tegundir áskorana
- Hvernig við getum byrjað með uppgötvunarferli (Discovery) í stað þess að mæta til leiks með staðlaðar lausnir
Hver verða með okkur?
Ingsa og Helgi, sem eru stofnendur Orgz og sérhæfa sig í að hjálpa stjórnendum og teymum þjálfa upp og tileinka sér akkúrat þá getu og færni.