– Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði
Hvað þýðir „framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum“ og hverjir sjá sig í slíkri starfslýsingu?
Á þessum Dokkufundi kynnir Bjarney rannsókn sína á kröfum um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði.
Með greiningu atvinnuauglýsinga og viðtölum við einhverfa einstaklinga var kannað hvernig ríkar og óljósar hæfniskröfur geta skapað hindranir í ráðningarferlum.
Fjallað verður um helstu niðurstöður og hvernig skýrari kröfur, sem endurspegla raunverulegar þarfir starfsins, geta stuðlað að inngildingu og aukið tækifæri einhverfra á vinnumarkaði.
Hver verður með okkur?
Bjarney L. Bjarnadóttir.
Hún er er stundakennari við Háskólann á Bifröst og sérkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar.
Hún hefur lokið meistaranámi á sviði forystu, mannauðsstjórnunar og verkefnastjórnunar og er með BS-gráðu í íþróttafræði.
Hún hefur fjölbreytta reynslu af kennslu, stjórnun og félagsstörfum, og er formaður Þroskahjálpar á Vesturlandi.
Rannsókn hennar fjallar um kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði.